Magnús Geir Þórðarson - Ríkisútvarp okkar allra til framtíðar (24.11.2014)

„Útvarpið á að vera háskóli alþýðunnar, leikhús hennar, kirkja og sönghöll, heimild nýrra tíðinda og sannrar frásögu, skemmtistaður hennar og athvarf úr einveru og fásinni.“ Svo mælti Helgi Hjörvar, formaður útvarpsráðs, í árdaga útvarpsins og þessi grundvallarmarkmið hafa ekkert breyst þrátt fyrir gífurlegar tækniframfarir og samfélagsbreytingar frá fyrstu útsendingu árið 1930. 

Hvers vegna Ríkisútvarp?
Ríkisútvarpið hefur frá upphafi notið víðtæks stuðnings almennings sem ein helsta menningar- og lýðræðisstofnun þjóðarinnar og það hefur fylgt henni á mikilvægustu stundunum í sögu hennar. Hlustunar-, áhorfs- og traustsmælingar sýna að staða Ríkisútvarpsins er sem fyrr sterk, í samanburði við fjölmiðla hérlendis sem erlendis. Þjóðir Evrópu hafa valið að hafa almannafjölmiðil líkt og við og sátt ríkir um mikilvægi slíkra fjölmiðla. Ástæðan er sú að almannafjölmiðlar hafa ákveðnum skyldum að gegna, umfram einkarekna fjölmiðla, við hlustendur og áhorfendur. Öllum samfélagsþegnum er tryggt aðgengi að þjónustu Ríkisútvarpsins – óhlutdrægum fréttum, gagnrýninni umræðu og gæðaefni á íslensku. Öflugt Ríkisútvarp er enn jafn mikilvægt þrátt fyrir fjölda nýrra samskiptaforma og einkarekna fjölmiðla. Ríkisútvarpið þjónar almenningi og stuðlar að jöfnuði, sanngirni og samkennd í stóru sem smáu. Við viljum að Ríkisútvarpið sé sameinandi afl í æ sundurleitara þjóðfélagi.

Hvert stefnum við?
Framtíðarsýn stjórnar og starfsfólks er að Ríkisútvarpið verði áfram öflugur almannamiðill í þjónustu þjóðarinnar allrar og aukin áhersla er lögð á menningar- og samfélagshlutverk hans. Við viljum vera virkir þátttakendur í að byggja upp og styrkja samfélag okkar, styðja og auka við þekkingu, hæfni og lífsgæði einstaklinga og þjóðfélagshópa. Við ætlum að efla innlenda dagskrárgerð og bæta framboð á leiknu efni og gæðaefni fyrir börn á íslensku, enda verður á næstu árum gerð enn ríkari krafa um að Ríkisútvarpið bjóði upp á vandað íslenskt efni þegar afþreyingarefni á erlendum tungumálum er á hverju strái. Nauðsynlegt er að gera átak í varðveislu og miðlun þjóðararfsins úr gullkistu Ríkisútvarpsins. Þar er samtímasaga Íslendinga skráð og að henni ber að hlúa. Undirbúningur er hafinn að úrbótum á þjónustu við landsbyggðina og stefnt að auknum fréttaflutningi og dagskrárgerð utan höfuðborgarsvæðisins. Stór skref hafa verið stigin í átt til meira jafnréttis í starfseminni og við viljum að Ríkisútvarpið sé í fararbroddi í jafnréttismálum. Jafnhliða endurbótum á dreifikerfi og sífellt meiri áherslu á bætt aðgengi allra opnum við talið við þjóðina um Ríkisútvarp okkar allra.

Útvarpsgjaldið stendur undir rekstrinum 
Ríkisútvarpið er eign þjóðarinnar og allir landsmenn hafa skoðun á því hvernig það þjónar skyldum sínum best. Frá upphafi hefur verið tekist á um rekstrar- og tilvistargrundvöll þess á vettvangi stjórnmálanna og árleg óvissa um fjármögnun hefur sett mark sitt á rekstur, tækniþróun og stefnumótun til langs tíma. Mikið hefur verið hagrætt í starfseminni á síðustu árum og á þessu ári hefur verið leitað leiða til að létta á skuldsetningu sem á m.a. rætur í gömlum lífeyrissjóðsskuldbindingum. 

Á undanförnum árum hefur ríkið tekið til sín hluta af útvarpsgjaldinu á hverju ári og nýtt í óskyld verkefni þrátt fyrir óbreyttar lagakvaðir um víðtæka þjónustu og skuldbindingar RÚV. Útvarpsgjaldið sem hver einstaklingur greiðir er sambærilegt að krónutölu við það sem þekkist hjá öðrum norrænum ríkisfjölmiðlum og nokkru lægra en hjá BBC og fleiri ríkisstöðvum í Evrópu. Stjórn RÚV hefur óskað eftir því að félagið fái útvarpsgjaldið óskert svo að tryggja megi áframhaldandi öflugt Ríkisútvarp, með sambærilegar skyldur og hlutverk og verið hefur. Óbreytt útvarpsgjald dugir til að standa undir öflugri dagskrá og nauðsynlegum úrbótum á dreifikerfi. Ekki er þörf á að hækka gjaldið eða veita sérstök fjárframlög til RÚV. 

Traust og metnaður
Ætlast er til að öll opinber fyrirtæki sýni ábyrgð í rekstri og vandaða starfshætti. Árangur almannafjölmiðils verður hins vegar á endanum mældur af trúverðugleika hans og því dýrmæta trausti sem þjóðin ber til hans. Til að viðhalda því trausti þarf Ríkisútvarpið að eiga daglegt samtal við þjóðina, efna til stórhuga og metnaðarfullra verka og standa ávallt vaktina þegar mikið liggur við. Ríkisútvarpið á að virkja samtakamátt þjóðarinnar á stórum stundum, leiða nýsköpun, og vera gagnrýnin, gagnvirk og sjálfstæð stofnun. Tilgangurinn er í raun enn hinn sami og Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri lýsti við upphaf útsendinga Sjónvarpsins 30. september 1966, „að tengja þjóðir og einstaklinga í skilningi og friði, vera vettvangur heilbrigðra skoðanaskipta, leiksvið margra lista, verkstæði fjölbreyttra framkvæmda, staður stórra drauma.“ Svo að þessi sýn megi lifa þurfum við áfram að standa vörð um Ríkisútvarp okkar allra.

Freyja Dögg Frímannsdóttir - Ríkisútvarp allra landsmanna (Akureyri vikublað 13.11.2014)

Við búum í stórbrotnu en strjálbýlu landi sem einkennist af stórkostlegri náttúru, misblíðri veðráttu og stundum erfiðum samgöngum. En þrátt fyrir það erum við flest sammála um að hér viljum við vera og þó svo að við getum ekki haft áhrif á það hvernig náttúruöflin hafa áhrif á líf okkar þá getum við haft áhrif á það hvernig við viljum vera sem þjóð. Viljum við til dæmis standa vörð um fjölmiðil sem leggur sig fram við að fanga fjölbreytileika mannlífsins í landinu og segja okkur sögur af fólki sem vekur áhuga okkar hvort sem við erum á Höfuðborgarsvæðinu eða Húsavík?
Sögur af landinu öllu
RÚV ber að flytja fréttir af öllu landinu, segja frá lífi fólks á öllu landinu, vera sýnilegt á öllu landinu og síðast en ekki síst vera í samtali og samskiptum við fólk á öllu landinu. Starfsfólk RÚV tekur hlutverk sitt alvarlega. Það hefur sýnt sig ekki síst nú þegar að náttúruhamfarirnar í Holuhrauni hafa minnt reglulega á sig í byggð að RÚV hefur staðið vaktina og starfsfólk hefur lagt sig fram við að flytja af því fréttir, fræða og upplýsa íbúa á öllu landinu um ástandið. Landinn er einnig gott dæmi um það hvernig starfsfólk RÚV leitar fanga um allt land, skyggnist inn í líf fólks og segir af því sögur. Fréttamenn RÚV á landsbyggðinni flytja fréttir í fréttatímum í útvarpi, sjónvarpi og á vef auk þess að taka viðtöl sem eru flutt í þáttum eins og Morgunútgáfunni, Síðdegisútvarpinu og Speglinum, svo dæmi séu tekin. Einn vinsælasti útvarpsþáttur landsins, Virkir morgnar á Rás 2, er nú að hluta til sendur út af landsbyggðinni daglega.
Á undanförnum árum hefur starfsemi RÚV á landsbyggðinni ekki farið varhluta af niðurskurði og samdrætti í þjónustu. Fyrir nokkrum árum var brugðist við niðurskurði hjá stofnuninni með því að minnka stórlega svæðisbundna miðlun og þótti mörgum, þar á meðal greinarritara, sem of langt hefði verið gengið.
Starfsemi RÚV á landsbyggðinni efld
Nú í októbermánuði tók undirrituð við starfi svæðisstjóra RÚVAK. Starfssviði svæðisstjóra hefur verið breytt til að mæta breyttum áherslum í starfsemi almannaþjónustuútvarpsins á landsbyggðinni. Auk þess að stýra starfsstöð Ríkisútvarpsins á Akureyri, þá stýrir svæðisstjóri starfsemi RÚV um allt land utan höfuðborgarsvæðisins. Hafin er stefnumótunarvinna þar sem unnið er að framtíðarsýn og útfærslu á því hvernig starfsemi RÚV verður efld á næstu tveimur árum. Það þarf að bæta í og styrkja fréttaflutning af landsbyggðinni. Það þarf að auka hlut dagskrárgerðar sem unnin er utan höfuðborgarsvæðisins. Það þarf að bæta við starsfólki sem vinnur efni af landsbyggðinni í alla miðla RÚV. Samhliða þessu er unnið að því að efla svæðisbundna miðlun RÚV á hverju svæði. Til þess að þetta sé hægt þarf að tryggja það að ekki verði frekari niðurskurður á starfssemi RÚV. Í útvarpslögum er gert ráð fyrir að útvarpsgjaldið renni óskert til RÚV en ekki að hluta til eins og það gerir nú. Það er ljóst að fái Ríkistútvarpið útvarpsgjaldið að fullu myndi það efla og styrkja rekstur þess á landinu öllu. Það er mikilvægt að Ríkisútvarpinu verði tryggðar aðstæður til að sinna sínum mikilvægu hlutverkum, ekki síst því hlutverki að vera útvarp allra landsmanna.
Freyja Dögg Frímannsdóttir
Svæðisstjóri RÚV á Akureyri
Greinin birtist í Akureyri vikublaði 13. nóvember 2014

Gunnar Örn Guðmundsson - Örstutt um dreifikerfi RÚV (Fbl. 12.11.2014)

Ríkisútvarpið er eign allra landsmanna og það er því starfsfólki RÚV mikið kappsmál að eigendurnir – almenningur – hafi greiðan og góðan aðgang að dagskrá RÚV í sjónvarpi, útvarpi og á vef. Af þessum sökum hefur RÚV áratugum saman rekið eigið dreifikerfi. Dreifikerfið hefur verið byggt upp með ærnum tilkostnaði í marga áratugi af fámennri þjóð í víðáttumiklu og hrjóstrugu landi. Það er til marks um takmarkalitla bjartsýni Íslendinga að á sínum tíma hafi verið lagt upp í þessa metnaðarfullu vegferð en landsmenn hafa sannarlega uppskorið í samræmi við fjárfestinguna.

Þeir sem búa utan þéttbýlis og þeir sem ferðast um landið vita að útsendingar RÚV nást misjafnlega vel eftir landssvæðum en sífellt er unnið að þéttingu og úrbótum á hinu viðamikla dreifikerfi. Ætíð er kappkostað að bregðast við eins fljótt og auðið er þegar útsendingarbúnaður bilar, gjarnan vegna óveðurs en að auki er nú að störfum vinnuhópur sem vinnur heildstæða stefnumörkun til framtíðar í dreifingarmálum Ríkisútvarpsins. Hátæknibúnaður er ekki alltaf vel til þess fallinn að standa af sér íslenskan vetur og því eru tæknimenn ávallt í viðbragðsstöðu, undir það búnir að gera við búnað sem veturinn leikur grátt.
Um árabil hefur markmiðið verið að ná til a.m.k. 99,8% þjóðarinnar. Útsendingar Ríkisútvarpsins nást víða um land þar sem engar aðrar útsendingar nást. RÚV stenst þar ekki einungis samanburð við frændstöðvar í nágrannalöndum heldur gerir gott betur en þær. Að mati stjórnenda danska útvarpsins DR er til dæmis meira en nóg að ná til 97% Dana og má þó vera nokkuð ljóst að þar er kostnaðurinn við dreifikerfið umtalsvert minni en hér á landi, þar sem Danmörk er minni og landslagið ekki hindrun fyrir útsendingarmerkið. Útvarpsgjaldið sem innheimt er á hvern íbúa í Danmörku er þó svipað að krónutölu og óskert útvarpsgjald á Íslandi.

Dreifikerfi Ríkisútvarpsins hefur tvíþætt hlutverk, í fyrsta lagi að miðla þeirri fjölbreyttu dagskrá sem í boði er til landsmanna en auk þess er dreifikerfi RÚV mikilvægur hlekkur í almannavörnum þjóðarinnar. Dreifikerfi Ríkisútvarpsins er gríðarlega víðfeðmt, með tæplega tvö hundruð FM-sendum, tveimur langbylgjusendum, hátt í hundrað sjónvarpssendum, gervihnattarútsendingum auk nýs stafræns dreifikerfis. Til þess að ná jafnstórum hluta landsmanna og RÚV stefnir að þarf þetta til. Hlutar þessa kerfis eru hins vegar komnir til ára sinna og tækninni hefur fleygt fram. Vegna þessa stendur RÚV nú ásamt Vodafone fyrir uppbyggingu stafræns dreifikerfis fyrir sjónvarp, þar sem RÚV getur sent tvær sjónvarpsrásir auk tveggja útvarpsrása í því dreifikerfi í betri gæðum en hingað til hefur þekkst. Gert er ráð fyrir að þessum kafla uppbyggingar dreifikerfisins ljúki fyrir áramót. Þessu til viðbótar er nú að störfum vinnuhópur sem á að móta heildstæða framtíðarstefnu um frekari uppbyggingu dreifikerfisins. Með þessu er stigið stórt skref og almenningi boðin betri þjónusta en verið hefur.

Til þess að tryggja þjónustu við landsmenn sem treysta ekki síst á RÚV þegar mikið liggur við er þó ljóst að Ríkisútvarpið þarf áfram að verja dágóðum hluta tekna sinna af útvarpsgjaldinu í viðhald og frekari uppbyggingu dreifikerfisins. Þessu verki lýkur aldrei – alltaf má gera betur.

Hallgrímur Indriðason - Almannaútvarp aldrei mikilvægara (Fbl. 06.11.2014)

Enn einu sinni er framtíð RÚV í óvissu af því að hugsanlega á að skera niður. Þetta er staða sem starfsmenn RÚV hafa nú búið við í sex til sjö ár. Fáir virðast hugsa um að á RÚV vinna starfsmenn sem á þessum árum hafa þurft að búa við að það sem þeir hafa byggt upp eftir niðurskurð er rifið niður í næsta niðurskurði. Þetta er niðurdrepandi, og enn eru hugmyndir um að halda áfram á þeirri braut. Ég er rólyndismaður með mikið langlundargeð, en þetta er farið að verða býsna þreytandi.

Það sem eykur svo á þreytuna er skrítin gagnrýni sumra stjórnmálamanna á fréttaflutning Fréttastofu RÚV, sem menn hafa jafnvel litið á sem dulbúnar hótanir. Að vísu er vandfundinn sá stjórnmálamaður sem er ánægður með allan fréttaflutning RÚV enda er það ekki hlutverk fjölmiðils að gera stjórnmálamenn ánægða. Og það á að hafa skoðanir á því sem gert er hjá RÚV. En samviskusamur fréttamaður getur illa tekið því að vera sagður ganga erinda einhverra sérhagsmuna, enda er slíkt ekkert annað en atvinnurógur. Og þetta vita flestir Íslendingar, enda treysta 76% þjóðarinnar fréttastofu RÚV og þrefalt fleiri treysta RÚV en fjölmiðlum almennt.

Meira en hjá flestum
En þarf RÚV ekki líka að skera niður eins og aðrir? Það hefur sannarlega verið gert, og það meira en hjá flestum, ef ekki öllum, öðrum ríkisstofnunum. Niðurskurðurinn á RÚV byrjaði ekki með hruninu. Hann byrjaði þegar RÚV var breytt í opinbert hlutafélag árið 2007. Þá var lífeyrisskuldbindingum og rekstri húsnæðisins við Efstaleiti – þar á meðal skuldunum – dembt á RÚV sjálft en það hafði áður verið á ríkinu. Og ekki fylgdu fjármunir til að standa straum af því. Þetta var því í raun skerðing á tekjum og hófust því hagræðingaraðgerðir þegar á því ári. Fáar aðrar stofnanir sem breytt var í opinbert hlutafélag þurftu að taka þetta á sig. Nú fer fjórðungur af útgjöldum RÚV í fjármagnskostnað vegna þessara skulda. Væri ekki gáfulegra að nýta þessar 800 milljónir í góða dagskrá?

Í ofanálag urðu miklar uppsagnarhrinur haustið 2008, snemma árs 2010 og haustið 2013. Og það er enn verið að hagræða. Og dæmi eru um að stjórnmálamenn hafi gengið svo langt að þeir gagnrýna niðurskurðaraðgerðir sem eru tilkomnar vegna niðurskurðar sem þeir sjálfir samþykktu!

Þá er það vitað mál að útvarpsgjaldið hefur ekki skilað sér allt til RÚV. Síðasta ríkisstjórn gekk meira að segja svo langt að hækka útvarpsgjaldið en skera niður fjárframlög til RÚV og hlutfall þess sem RÚV fær af útvarpsgjaldinu hefur farið stöðugt lækkandi. Það er ekki aðeins RÚV sem hefur verið hlunnfarið þar heldur íslenskir skattgreiðendur.

Óboðleg staða
En svo við snúum okkur að fréttastofunni þá hefur hún laskast mikið frá því hún varð til í núverandi mynd haustið 2008 þegar fréttastofur útvarpsins og sjónvarpsins sameinuðust. Niðurskurðurinn síðan þá jafnast á við mannskapinn sem var áður á fréttastofu sjónvarpsins. Það eru sem sagt álíka margir fréttamenn að vinna fréttir bæði í útvarp og sjónvarp nú, og voru einungis að vinna fréttir í útvarpi fyrir sjö árum. Þjónustan er þó enn þá nánast sú sama. Var einhver að tala um að hagræðing hefði ekki skilað sér í fækkun starfa? Álagið er nú að fara að segja til sín hjá fréttamönnum og þegar hafa margir af þeim reyndustu hætt störfum en þeir sem eftir eru hafa gert ótrúlega vel í að halda fréttaþjónustunni. Staðan á fréttastofunni er einfaldlega sú að það er orðið sífellt erfiðara vegna mannfæðar. Og slík staða í almannaútvarpi er óboðleg.

Hagræðing hefur gert það að verkum að endurnýjun tækjakosts hefur setið á hakanum og það sést reglulega í útsendingum bæði útvarps og sjónvarps. Þá fást ekki fjármunir til að endurnýja dreifikerfið sem gerir RÚV erfitt að sinna öryggis- og almannavarnahlutverki sínu.

Fjölmiðlar hafa gengið í gegnum ýmislegt undanfarin misseri, ekki bara fjárhagslega heldur líka í eignarhaldi. Það gerir það að verkum að það hefur aldrei verið nauðsynlegra en nú að hafa fjölmiðil sem fær umboð sitt eingöngu frá almenningi, er óháður stjórnmálaflokkum jafnt sem viðskiptaveldum og getur veitt hvoru tveggja ríkt aðhald, upplýst þjóðina og skapað henni umræðuvettvang. RÚV þarf að fá svigrúm til að rækja þessa skyldu sína. 

Ég styð heilshugar þá kröfu útvarpsstjóra og stjórnar RÚV að stofnunin fái útvarpsgjaldið óskert eins og það er núna. Það er komið nóg í niðurskurði og nú þarf RÚV að fá það svigrúm til að byggja upp dagskrá og innviði í stað þess að allt sé rifið niður jafnharðan. Ef lengra verður gengið getur RÚV ekki sinnt sínu lögbundna hlutverki eins og það er samkvæmt lögum. Það hlutverk hefur aldrei verið mikilvægara en einmitt í dag.

Arnar Eggert Thoroddsen - Popp bjargar mannslífum (Morgunblaðið. 06.11.2014)

Umræðan um ríkisreknu fjölmiðlana hefur hreyft nokkuð við mér að undanförnu. Tal um að hola þessar stofnanir að innan, selja eða leggja niður kemur ekki á óvart þegar grjóthörð hægri stjórn fer með völd og því brýnt að „gáfnaljós á vinstri vængnum“ láti nú að sér kveða. Svo ég ræði um það sem snýr að mínu sérsviði, dægurtónlistinni, er ljóst að Sjónvarpið, Rás 1 og Rás 2 vinna öll sérstaklega mikilvægt starf hvað varðar þá eðlu list í íslensku tilliti, hvort sem er í formi kynningar, varðveislu eða almennrar næringar og uppbyggingar.

Popp er menning

Ummæli Karls Garðarssonar alþingismanns um Rás 2 í síðasta mánuði (2. október í DV) lýsa þess vegna ævintýralegri skammsýni en ég er hræddur um að fleiri – þótt ótrúlegt sé – taki í svipaðan streng. „Hvort skiptir okkur meira máli að hlusta á dægurtónlist á Rás 2 eða bjarga mannslífum?“ spurði Karl en var þó á því að menning væri nauðsynleg (?). Dægurtónlistinni væri hins vegar ágætlega sinnt af einkaaðilum og „það sama gildir um ameríska sápuóperu og annað slíkt“. Útgangspunkturinn er þessi: popp er ekki menning heldur merkingarsnautt drasl sem hefur lítið að segja. Nú er skilningur á því að popp sé vissulega menning hins vegar orðinn giska almennur og velferðarrannsóknir sýna að öflugt tónlistarlíf, hvort heldur í gegnum tónlistarnám, bílskúra, útvarpssenda eða afspilunarform ýmiskonar stuðlar að góðri lýðheilsu. Fjárhagslega veltir íslenski dægurtónlistarbransinn þá miklum fjárhæðum og ég þarf ekki að fjölyrða um afrek landans á því sviðinu á erlendri grundu, árangur sem heldur áfram að ýta undir mikinn og lifandi áhuga á öllu því sem íslenskt er (sem skilar sér svo í beinhörðum peningum í ríkiskassann í gjaldeyristekjum o.s.frv.). Þetta hef ég t.d. orðið verulega var við í fræðasamfélaginu hér úti í Edinborg. Dægurtónlistin okkar, eins og staðan er í dag, er gulls ígildi. Það er merkilegt hvað þessi einfalda heildarmynd flækist fyrir ráðamönnum landsins og það sýknt og heilagt. Viðlíka staðreyndir blasa hins vegar við stjórnvöldum hér í Bretlandi og það þó að einkavæðingin standi þeim töluvert nær en fyrri ríkisstjórnum. Menn gera sér þrátt fyrir það skýra grein fyrir hlutverki BBC, vissulega eru hártoganir um stefnu og slíkt en almenn samstaða ríkir um grunninn.

Alltaf gróði

Ríkismiðlar geta nefnilega leyft sér, eðlis síns vegna, að hlúa að hlutum sem hafa gildi í sjálfum sér, gildi sem rúmast ekki svo auðveldlega í excel-skjali. Gróðinn af því starfi – heilsufarslegur, fjárhagslegur, menningarlegur – sýnir sig þó alltaf á endanum en einungis, og þetta er mikilvægt, ef fólki er veitt það sjálfsagða svigrúm að sinna því starfi af sóma. Það þarf því ekki ýkja mikið hyggjuvit til að sjá að þegar allt kemur til alls þá bjargar popp mannslífum.
Höfundur er doktorsnemi í tónlistarfræðum við Edinborgarháskóla og tónlistarblaðamaður.

Hermann Stefánsson - Að reikna sig til helvítis (Fbl. 04.11.2014)

Fyrir nokkrum árum uppgötvuðu fáeinir íslenskir spekúlantar að þeir kunnu að reikna. Í kjölfarið komust þeir að raun um að þetta var ný þekking, aldrei hafði nokkur maður kunnað að reikna í sögu mannkyns. Í ofanálag kom yfir þá sú hugljómun að það var hægt að beita þessari nýuppgötvuðu þekkingu á alla skapaða hluti og jafnvel leika sér með tölur. Það var hægt að reikna út verðið á sjúkrarúmi og innlagningardögum á spítala, reikna út hagnaðarvon og skilvirkni í starfsemi stofnana og á íslenskri tungu, reikna út prísinn á andlegum verðmætum, framlegðaráhrif og skilvirkni lista og verðið á vergri sjálfsvirðingu. Það var hægt að reikna sig rakleiðis til helvítis.

Undanfarið hafa nokkrir reiknimeistarar tekið að sér í blaðagreinum að reikna út hvað það kosti nú að halda úti almannaútvarpi. Þessir spekingar komast jafnan að því að þetta sé of dýrt og eitthvað þurfi undan að láta. Í einni af nýjustu ritningunum, ég hirði ekki um að greina þær hverja frá annarri, er lagt til að dregið sé stórkostlega úr starfsemi Ríkisútvarpsins. Stöku stjórnmálamenn hafa talað eins og þessar fabúleringar séu marktæk innlegg í umræðuna. Það tekur því ekki að blanda sér í reikningskúnstirnar að öðru leyti en því að nefna að ekkert bendir til annars en að það sé einfaldasta mál í heimi að bjarga fjárhag RÚV. Það er gert með því að láta allt útvarpsgjaldið renna til RÚV eins og því er ætlað að gera. Og með því að draga Ohf.-væðingu stofnunarinnar til baka og aflétta tilheyrandi lífeyrisskuldbindingum sem íþyngja rekstrinum. En fyrst af öllu þarf útvarpsgjald að renna óskert til RÚV. Það nægir. Útvarpsgjald er svipað á öllum Norðurlöndum og víðar hærra. Þannig reka allar nágrannaþjóðir okkar almannaútvarp. 

Villusýn
Eða af hverju geta Spánverjar með öll sín hörmulegu vandamál, atvinnuleysi og efnahagsvanda, ekki aðeins rekið miklu betra heilbrigðiskerfi en Íslendingar heldur einnig mun öflugri almannafjölmiðla, útvarp og sjónvarp? Hví hengja Íslendingar haus og væla meðan slíkar þjóðir standa í lappirnar? Það er vegna þess að víðast hafa stjórnmálaflokkar einhverja reisn og láta ekki hvarfla að sér að hlusta á rausið úr reikningshausum. Af hverju var útvarpið ekki lagt niður árið 1950, 1936 eða 1993? Það er vegna þess að þá hvarflaði ekki að stjórnmálunum að selja sjálfsvirðingu sína.

Stærðfræði er merkileg vísindagrein. Hún er hrein vísindi sem ekki tengist öðru en sínum eigin óhlutbundnu reglum. Þessu gera allir góðir stærðfræðingar sér grein fyrir. Þeir vita að fólk getur ekki reiknað út pólitísk og menningarleg gildi sín. Það er sérstök fyrirhöfn að hafa kúltúr og gera sér gildi sín ljós. Menning, eins og sú sem miðlað er á Rás 1, er grunnur þeirra gilda. Það er mikilvægt að stjórnmálamenn láti ekki glepjast af þeirri villusýn að menning sé útreiknanleg verðmæti og eða gerist slíkar smásálir að halda að menning sé í eigu sumra stjórnmálaflokka en náttúrulegur óvinur annarra. Menning er allra. Að skera hana niður eru svik við hugsjónir allra stjórnmálaflokka og alla þeirra sögu. Að leggja niður útvarpsrás eru óafturkræf hryðjuverk. Það yrðu afdrifaríkar ákvarðanir ef stjórnmálamenn ákvæðu að leggja til atlögu við Ríkisútvarpið. Lítilsigld yrði þeirra arfleifð. Tíminn er kannski ekki fljótur að reikna en hann mylur fjandi smátt.

Margrét Örnólfsdóttir - Dönsk sjónvarpssería um Bráðamóttökuna? (Fbl. 31.10.2014)

Svarið er nei. Danir eru ekki að framleiða íslenskt sjúkrahúsdrama. Það eru yfirhöfuð ekki stórkostlegar líkur á því að útlendingar hafi áhuga á að gera íslensku samfélagi eða menningararfi skil í formi kvikmynda nema í litlum mæli. Ef á að segja þessar sögur þá verðum við að gera það sjálf. Og við eigum að gera það – við eigum nægt sagnaefni og mannskap til að framleiða gott sjónvarpsefni, eftirspurnin er til staðar því það er staðreynd að það sem áhorfendur vilja helst sjá er innlend framleiðsla – það eina sem vantar er vettvangurinn og stuðningurinn. 

Að blóðmjólka niðurskorna kú
Ef RÚV væri mjólkurkýr væri löngu búið að ávíta húsbændurna fyrir illa meðferð og líklega stefndi allt í að þeir yrðu dæmdir óhæfir til að annast skepnuna. Erfið fjárhagsstaða ríkisfjölmiðilsins hefur staðið þróun íslensks sjónvarpsefnis fyrir þrifum um langa hríð. Það sem helst er að sliga RÚV eru íþyngjandi lífeyrisskuldbindingar, há fasteignagjöld og sú skammarlega staðreynd að útvarpsgjaldið skilar sér ekki til fulls. Forsvarsmenn RÚV hafa sagt að bara sú ráðstöfun, að Ríkisútvarpið fengi útvarpsgjaldið óskert, nægði til þess að komast á réttan kjöl. Ef stjórnvöld bregðast ekki við með því eina rétta í stöðunni, að hætta að klípa af þessum skatti, þá er ljóst að viljinn til að mæta vandanum er hreinlega ekki til staðar. RÚV hefur nú boðað metnaðarfull markmið um að stórauka hlut íslensks efnis í dagskránni, enda á sérstaða ríkisfjölmiðils að liggja í vandaðri og fjölbreyttri sjónvarpsdagskrá þar sem nýtt leikið sjónvarpsefni er skrautfjöðrin. Það er kominn tími á bætta búskaparhætti og að stjórnvöld átti sig á þeim miklu verðmætum og möguleikum sem felast í sterku Ríkisútvarpi. 

Skandinavíska æðið
Skandinavískt sjónvarpsefni vinnur nú hvern stórsigurinn á fætur öðrum. Sérstaklega hafa danskar þáttaraðir náð áður óþekktum vinsældum og útbreiðslu og merki eru um að Norðmennirnir séu að skríða yfir alþjóðaþröskuldinn líka. Athygli umheimsins er núna á þessum heimshluta – okkar heimshluta. Einhver gæti komið með þau mótrök að við getum ekki borið okkur saman við stóru frændþjóðirnar, aðstöðumunurinn sé of mikill. En það er rangt. Það er talsverð eftirspurn eftir íslensku sjónvarpsefni í útlöndum. Fjölmörg verkefni í þróun hafa þegar verið seld til norrænna sjónvarpsstöðva og erlend framleiðslufyrirtæki sýna íslenskri kvikmyndagerð mikinn áhuga. Þessi verkefni gætu þannig átt greiðan aðgang að stærri mörkuðum hjá nágrannaþjóðunum en til þess þarf að sjálfsögðu að vera hægt að framleiða efnið. Allt strandar á hversu baklandið hér heima er veikt, á meðan bæði RÚV og Kvikmyndasjóður eru höfð í svelti. Við gætum svo hæglega nýtt okkur þann mikla meðbyr sem Skandinavía hefur um þessar mundir en ef RÚV verður skorið meira niður getum við gleymt því. Þá getum við bara haldið áfram að horfa á dönsku þættina sem við erum öll svo hrifin af. 

Hvað þarf til?
Af hverju skyldu Danir hafa náð svona langt? Það skyldi þó aldrei vera að í Danmörku ríki talsvert meiri skilningur á mikilvægi danskrar kvikmyndagerðar og sterkum ríkisfjölmiðli sem leggur rækt við menningarlega sérstöðu? Danirnir eru búnir að finna sína olíu, sjónvarpsþáttagerð, sem í augnablikinu skapar gríðarleg verðmæti, bæði menningarleg og efnahagsleg. Við sitjum hér á vannýttri endurnýjanlegri orkulind og RÚV er virkjun sem er að drabbast niður. Það er mín einlæg ósk að stjórnvöld átti sig á því hversu mikils við förum á mis ef þróuninni með RÚV verður ekki snúið við hið snarasta. Gerið nú það eina rétta – í upphafi árs var boðuð stórsókn í íslenskri kvikmyndagerð, sýnið það í verki áður en Áramóta-skaupið brestur á!

Ragnar Bragason - Sjónvarp í almannaþágu (Fbl. 31.10.2014)

Víðast hvar erlendis þegar Danmörku ber á góma eru leiknu þáttaraðir danska ríkissjónvarpsins það fyrsta jákvæða sem kemur upp í huga fólks. Þessi mikilvægi samfélagsspegill danskra er einnig þeirra mikilvægasta útflutningsvara síðustu ára. Víðtæk jákvæð áhrif þessa þarf ég ekki að tíunda hér. En gæði dansks sjónvarpsefnis er ekki tilviljun. Metnaðarfull þróun og þroski þess var menningarpólitísk og fjárhagsleg ákvörðun tekin fyrir rúmum áratug út frá einföldum spurningum; Hver erum við sem einstaklingar og sem samfélag? Hvernig viljum við sjá okkur í okkar sjónvarpi?

Íslensk þjóð gladdist í vor þegar nýr útvarpsstjóri var ráðinn, maður sem hafði unnið kraftaverk í leikhúsum landsins. Tilfinningin var að nú ætluðu stjórnvöld að styrkja og efla menningarhlutverk RÚV, það yrði blásið í lúðra og fánar reistir. En í dag mæla misvitrir enn og aftur fyrir frekari niðurskurði og harmonera þannig við stefnu sem framfylgt er í löndum sem okkur langar ekki að bera okkur saman við. 

RÚV er meginvettvangur íslenskrar menningar, útvarp og sjónvarp í almannaþágu. Þar opnast okkur fjölbreytt heimsýn, ólíkar raddir, straumar og stefnur öllum aðgengilegar, sama á hvaða aldri, hvar sem er á landinu. 

RÚV er einnig stærsti spegill þjóðarinnar, þar hljómar og birtist fjölbreytileiki hennar og andi. Sé andinn sem þar birtist fátæklegur verðum við enn fátækari í anda. 

Við erum rétt rúmlega 320.000 sem tölum þetta einstaka tungumál og hvað gerir hóp að þjóð annað en tungan og menningin?
Styrkja þarf sérstöðu RÚV með áherslu á metnaðarfulla dagskrárgerð, sérstaklega er það mikilvægt þegar kemur að leiknu efni. Þar eru fræ mörg í jörð en spíra ekki nema hlúð sé að og vökvað. 

Skammsýni
Mikill niðurskurður hefur orðið á RÚV á síðustu árum með aðhaldsaðgerðum og uppsögnum í kjölfarið. Aðhald er gott þegar skórinn kreppir en líta ber upp og hugleiða þegar skerðing verður að skaða. 

Staðreyndin er sú að hið lögbundna útvarpsgjald, sem við öll greiðum og er sambærilegt við löndin í kringum okkur, rennur stórskert til sjónvarps allra landsmanna. Það var kannski skiljanlegt korteri eftir hrun en ekki í dag. 

Ofan á niðurskurð og skert framlög hefur RÚV lengi verið að sligast undan eldgömlum lífeyrisskuldbindingum sem ríkið hefur fyrir löngu aflétt af öðrum menningarstofnunum.

Framkvæmdastjóri Sambands útvarps og sjónvarpsstöðva í Evrópu benti nýlega á að flestar siðmenntaðar menningarþjóðir í kringum okkur tryggja sínum almannafjölmiðlum stöðugleika með traustu fjármagni bundnu til lágmark fjögurra ára í senn. RÚV getur hinsvegar ekki sett sér langtímamarkmið vegna þeirrar óvissu sem skapast ár hvert þegar framlög eru háð geðþóttaákvörðunum fjárlagaárs.

Allt tal um frekari niðurskurð í einstrengingslegri hugsun um hallalaus fjárlög ber merki um skammsýni. Ég skora á stjórnvöld að búa þannig um hnútana að RÚV verði eflt þjóðinni til hagsbóta og í framhaldi spyrjum við svo; Hver erum við sem einstaklingar og sem samfélag? Hvernig viljum við sjá okkur í okkar sjónvarpi?

Friðrik Rafnsson - Mannræktarstarf RÚV (Fbl. 30.10.2014)

Allt frá stofnun RÚV árið 1930 hafa skoðanir verið skiptar meðal þjóðarinnar um hlutverk þess og stöðu. Það er bara eðlilegt í heilbrigðu lýðræðissamfélagi, ekkert væri verra en þögn og skeytingarleysi. Íslenska þjóðin, eigandi RÚV, gerir miklar kröfur til þess að vel sé farið með það fé sem til þess rennur og það skili sér í sem allra bestri þjónustu, góðri og vandaðri dagskrá í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum. Það er og verður síðan alltaf mats- og smekksatriði, en mestu skiptir að þjóðin treysti Ríkisútvarpinu og líti á það sem einn af burðarásum íslensks nútímasamfélags.

Traustið grundvallaratriði
Hlustenda- og notendakannanir eru bestu mælikvarðarnir á það traust sem fólk ber til fjölmiðla. Hér eru nokkrar beinharðar staðreyndir: Segja má að nánast allir landsmenn njóti dagskrár RÚV á einn eða annan hátt í viku hverri. 87% landsmanna horfa á RÚV að meðaltali í hverri viku, 30% hlusta á Rás 1 og 62% á Rás 2 í viku hverri. Vefurinn ruv.is er í 5. sæti í vefmælingu Modernus með 212 þúsund notendur í viku 41 (6. til 10. október s.l). Í viðhorfskönnun sem Capacent gerði september 2013 sögðust 70,5% landsmanna telja RÚV vera mikilvægasta fjölmiðilinn fyrir þjóðina og þrátt fyrir stöðugar umkvartanir stjórnmálamanna nýtur fréttastofa RÚV meira trausts en nokkur annar fjölmiðill. Í könnun sem MMR gerði í desember 2013 sögðust 76,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Fréttastofu RÚV. Þetta sýnir glögglega að enda þótt RÚV eigi sér nokkra háværa og áhrifamikla óvildarmenn og -konur treystir íslenska þjóðin mjög vel þeim upplýsinga- og mannræktarmiðli sem RÚV er.

Brugðist við vandanum
Ég hef setið í stjórn RÚV frá því í byrjun þessa árs og þekki því nokkuð vel til mála þar. Magnús Geir Þórðarson tók við starfi útvarpsstjóra um miðjan mars, kynnti breytingar í rekstrinum sem hann taldi nauðsynlegar og hlaut til þess fullt umboð stjórnar RÚV. Meðal þess var að stokka upp í framkvæmdastjórn, minnka yfirbyggingu og einfalda allar boðleiðir. Með öðrum orðum, minna bákn og meiri skilvirkni í rekstrinum og starfseminni, allt í þágu betri þjónustu við þjóðina. 

Útvarpsstjóri og framkvæmdastjórn hafa síðan unnið sleitulaust að því undanfarna fimm mánuði að hagræða í rekstri RÚV og fá skýrari mynd af fjárhagnum. Eins og fram hefur komið hjá útvarpsstjóra og formanni stjórnar RÚV er nú unnið hörðum höndum í að koma skikk á fjármál RÚV, leigja út hluta hússins, selja lóð og/eða húsnæði, en ekki síst að fá Alþingi til að samþykkja þá eðlilegu beiðni að RÚV fái þann markaða tekjustofn sem því er ætlað, útvarpsgjaldið, óskert. Hluta af útvarpsgjaldinu hefur ríkið notað í önnur verkefni. Þessar skertu tekjur duga ekki fyrir óbreyttri starfsemi, en verði það látið renna óskert til RÚV, sem er líka heiðarlegra gagnvart skattgreiðendum, ætti það að duga til að koma rekstrinum í jafnvægi. 

Stöðugt ræktarstarf
Staðan er sannarlega ekki góð, það hefur verið vitað lengi, og á m.a. rætur sínar að rekja til þess að RÚV var gert að opinberu hlutafélagi árið 2007 og látið taka á sig óheyrilegar skuldbindingar. En nú er loks verið að gera eitthvað í málinu. Þess vegna er hann heldur hjárænulegur, sá heilagi vandlætingartónn sem nokkrir fjölmiðla- og stjórnmálamenn hafa sent RÚV undanfarið. Þeir minna einna helst á foreldri sem hundskammar unglinginn á heimilinu fyrir að drattast loks til að taka til í herberginu sínu. 
„RÚV á að rækta mann,“ segir góð kona stundum í mín eyru. Það er hárrétt, en þá þurfum við líka að rækta RÚV, hlúa að því og efla það til að geta tekist á við ýmis verkefni sem markaðsfyrirtæki ræður ekki við. Þá munum við öll, íslenska þjóðin, uppskera ríkulega í enn fjölbreyttara, umburðarlyndara og betra mannlífi.

Kolbrún Bergþórsdóttir - Skjaldborg um RÚV (Mbl .30.10.2014)

Einkennileg herferð stendur yfir gegn RÚV, þar sem menn, aðallega á hægri væng stjórnmála, beita sér mjög og viðhafa stór og sterk orð um stofnunina og jafnvel má skilja af orðum þeirra að þeir telji RÚV óþarfa stofnun. Meginþorri þjóðarinnar er örugglega ekki á sama máli.
RÚV er mikilvæg menningarstofnun sem sinnir hlutverki sínu af miklum metnaði. Sú sem þetta skrifar ólst upp við RÚV og hlaut í gegnum Rás 1 menningarlegt uppeldi sem hún verður ævinlega þakklát fyrir. Þeir sem harðast gagnrýna RÚV ættu að horfa aftur til æskuáranna og rifja upp kynni sín af RÚV. Geri þeir það má ætla að klakinn sem þeir geyma í brjósti sér gagnvart stofnuninni muni bráðna og kalt hjarta þeirra taki að hlýna. Hver er ekki þakklátur fyrir útvarpsleikrit, síðdegissögur, ljóðaflutning, Sinfóníutónleika, útvarpsmessur, bænir, upplestur á Passíusálmum, síðasta lag fyrir fréttir? – og svo mætti lengi halda áfram að telja, en plássið leyfir það ekki. Halda þessir háværu, en sennilega fámennu gagnrýnendur, að þessi dagskrá myndi sjálfkrafa flytjast á aðra fjölmiðla yrði RÚV gert óstarfhæft?
Stundum heyrist sagt að innlend dagskrárgerð á RÚV sé nokkuð sem aðrar útvarps- og sjónvarpsstövar geti auðveldlega sinnt. Ekki sýnist manni nú að svo sé, og ekki verður vart við sérlegan menningarlegan áhuga hjá forsvarsmönnum annarra útvarps- og sjónvarpsstöðva, þótt vafalaust muni þeir gala hátt í mótmælaskyni við þessa fullyrðingu.
Það má sannarlega deila um dagskrá RÚV og það hafa menn líka óspart gert. Undirrituð er til dæmis ósköp mædd yfir því að síðasta lag fyrir fréttir sé ekki á réttum stað í dagskrá, en breyting var gerð til að fá meiri pening í kassann – það veitir víst ekki af því hjá RÚV. Líka má velta því fyrir sér hvort ástæða sé til að hafa á dagskrá RÚV þætti sem hafa litla sem enga hlustun eða nær ekkert áhorf. Það ættu ekki að teljast helgispjöll að taka þá af dagskrá og setja aðra í þeirra stað.
Menntamálaráðherra landsins er menningarlega sinnaður og ekki verður öðru trúað en að hann vilji veg RÚV sem mestan. Fjárhagsvandi RÚV er mikill og hann þarf að leysa. Það verður hins vegar ekki gert með því að lama merka menningarstofnun. Hluti af sanngjarnri lausn hlýtur að vera að Ríkisútvarpið fái útvarpsgjaldið til sín að fullu, en ekki einungis hluta þess. Gömul lífeyrisbyrði mun svo vera baggi á stofnuninni. Þá er að losa stofnunina undan því.
Hér skal fullyrt að þjóðinni þyki vænt um RÚV. En stundum nægir ekki að hýsa hlýjar tilfinningar í hjarta sínu heldur þarf einnig að finna þeim orð. Íslendingar eiga að slá skjaldborg um RÚV og þakka fyrir að eiga stofnun sem sinnir menningarhlutverki sínu af sönnum metnaði. kolbrun@mbl.is
Kolbrún Bergþórsdóttir